Fréttir úr Ferjubakka

Hér setjum við inn allt það sem telst fréttnæmt úr Ferjubakkanum. Vinsamlegast athugið að hér er um opið svæði að ræða og því getum við ekki birt allt sem okkur sýnist. Endilega sendið okkur línu ef þið hafið eitthvað efni eða tilkynningar sem gætu átt heima hér.
Húsfundur þann 19.05.2022

Húsfundur þann 19.05.2022

Á húsfundi þann 19.05.2022 ræddum við ýmis mál sem varða áframhald viðgerða á húsinu okkar. Til dæmis fórum við yfir litaval á húsinu, samþykktum lit á sökkul og eins lit á hjóla- og ruslageymsludyr.

Við tókum talsverða umræðu um stöðu mála varðandi þær gluggaeiningar sem hafa verið að berast til okkar uppá síðkastið og standa hér úti á lóð. Þ.e. stóru einingarnar. Húsfélagið er í dag í viðræðum við verkaðila varðandi einingarnar en okkur sýnist að þær sem voru pantaðar uppfylli ekki þau atriði sem rætt var um í upprunalegum verksamningi.

Nýr formaður húsfélagsins var kosinn og við því hlutverki tók Hafsteinn Hafsteinsson í F8.

Nánari upplýsingar er að finna í fundargerð fundarins sem hægt er að skoða inni á mínum síðum hjá Eignaumsjón.

Engin ummæli enn
Leit